

Glóð er framtak sem styður íslenska nýsköpun í gervigreind með aðgangi að þekkingu, gögnum og reikniafli. Hún tengir saman fyrirtæki, sprota, opinbera aðila og rannsóknarsamfélagið til að hraða þróun og innleiðingu gervigreindarlausna.

Glóð styður bæði byrjendur og lengra komna í þróun gervigreindarlausna. Markmiðið er að lækka þröskulda, hraða nýsköpun og efla hagnýta notkun gervigreindar á Íslandi, með því að bjóða upp á þjónustuna gjaldfrjálst. Öll áhugasöm eru hvött til að hafa samband.
