
Reikniafl · Ráðgjöf · Gagnasöfn
Kynning og vinnustofur
Dagsetning
Þriðjudagurinn 1. september 2026
Tími
Kl. 12–17
Staðsetning
Sykursalurinn, Gróska
Flest okkar vinna nú þegar með tækni sem gæti gert margfalt meira ef hún hefði aðgang að auknu reikniafli, aflinu sem knýr tölvubúnað til að leysa stór og flókin verkefni. Því meira afl, því stærri og þyngri verkefni er hægt að leysa og því hraðar má byggja umfangsmiklar stafrænar vörur og þjónustu.
Á opnunarviðburði Glóðar kynnum við nýja þjónustu sem veitir íslenskum fyrirtækjum, sprotum, stofnunum og rannsóknarfólki aðgang að margfölduðu reikniafli. Farið verður yfir hverjir möguleikarnir eru og forsendurnar fyrir þáttöku eru, ásamt sýnidæmum frá íslenskum fyrirtækjum sem hafa nýtt sér aukið reikniafl í framþróun sinni.
12:00 – 13:00
Allir gestir koma saman í fyrsta sinn: sprotar, fyrirtæki, opinberar stofnanir og tæknifólk víðs vegar að af landinu. Hádegisverður í boði.
13:00 – 15:00
Þátttakendur skipta sér í tvær samhliða lotur, sniðnar að ólíkum hópum.
Tilgangur: að kynna Glóð fyrir litlum og meðalstórum fyrirtækjum og opinberum stofnunum, sýna fram á virði HPC, gagna og gervigreindar og kortleggja þarfir þátttakenda. Þrír hlutar, 30 mínútur hver.
Fyrir sprota, fyrirtæki og stofnanir sem hafa þegar nýtt gervigreind og/eða HPC og vilja skala upp.
15:00 – 17:00
Dagskrá lýkur með léttum veigum í Sykursalnum.
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Glóð styður íslenska nýsköpun í gervigreind með aðgangi að þekkingu, gögnum og reikniafli - gjaldfrjálst og fyrir öll - hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin eða ert lengra kominn. Glóð er styrkt að hluta af Evrópusambandinu.