Glóð býður upp á sérfræðingaþekkingu í gervigreind og ofurtölvum, íslensk gagnasöfn og sameiginlega vinnuaðstöðu í Grósku. Teymið samanstendur af sex aðildarfélögum úr máltækni-, háskóla- og rannsóknarsamfélaginu og hver stofnun tekur að sér þjónustu- og stuðningshlutverk.

Sér um verkefnastjórnun og stefnumótun. Samskipti og tenging við EuroHPC, LUMI og evrópskt gervigreindarvistkerfi.

Veitir þjálfun í gervigreind. Sérfræðiaðstoð og tæknilegur stuðningur við þróun gervigreindarlausna.

Veitir tæknilega ráðgjöf, stuðning við háafkastareiknivinnslu (HPC), aðgang að reikniauðlindum og stuðning við innleiðingu á HPC-klösum.

Hýsir sameiginlega vinnuaðstöðu. Tengsl við sprota, fyrirtæki og nýsköpunarumhverfi.

Veitir aðgang að gagnasöfnum og sérfræðiþekkingu á máltækni í gervigreind.

Útvegar umhverfis- og jarðvísindagögn ásamt sérþekkingu á stórvirkri tölvuvinnslu (e. HPC).
Glóð vinnur að því að styrkja og alþjóðavæða íslenska gervigreindarvistkerfið með beinni tengingu við evrópska ofurtölvu- og uppbyggingu innviða, og stuðla að ábyrgri, skalanlegri og sjálfbærri þróun íslenskra gervigreindarlausna.
Glóð knýr fram hraðari þróun á sviði gervigreindarlausna á Íslandi með aðgengi að svo kölluðum afkastamiklum tölvuvinnslum (e. high performance computing, HCP) og sérfræðistuðningi fyrir einyrkja í nýsköpun, sprotafyrirtæki, lítil og meðalstór fyrirtæki og opinberar stofnanir.