Til baka

    12. júní 2026

    Streymi Labs fær aðgang að öflugu reikniafli í gegnum Glóð

    Sprotafyrirtækið Streymi Labs gekk nýlega til liðs við þjónustu Glóðar. Fyrirtækið þróar gervigreindarlausn sem miðar að því að gera straumfræðigreiningar (e. Computational Fluid Dynamics, CFD) hraðari og hagkvæmari. Slíkar greiningar eru meðal annars notaðar til að meta áhrif vinds á byggingar og loftflæði um vængi flugvéla. Útreikningarnir eru oft flóknir, krefjast mikils reikniafls og geta tekið marga daga.

    Streymi Labs var stofnað af Degi Óskarssyni, vélaverkfræðingi og framkvæmdastjóra, og Garðari Ingvarssyni Juto, tölvunarfræðingi og tæknistjóra. Fyrirtækið hlaut nýlega 20 milljóna króna styrk úr sprotasjóði Rannísar og vinnur að lausn sem gæti gert straumfræðigreiningar aðgengilegri fyrir smærri fyrirtæki og verkfræðiteymi.

    Í samstarfi við Glóð var farið yfir þarfir Streymis og kom í ljós að fyrirtækið þyrfti mikið reikniafl og vinnsluminni til að þjálfa gervigreindarlíkön sín. Í kjölfarið fékk Streymi aðgang að 30.000 vinnustundum í ofurtölvunni Leonardo, sem tilheyrir evrópska ofurtölvunetinu EuroHPC, auk Dell Pro Max AI smátölvu með NVIDIA GB10 örflögu fyrir smærri prófanir. Aðgangurinn gerir fyrirtækinu kleift að vinna að þróun lausnarinnar án þess að þurfa að leggja út í mikinn kostnað við reikniafl.

    „Stuðningur Glóðar sparar okkur tugi milljóna í leigu á dýru reikniafli sem annars hefði sligað sprotafyrirtæki eins og okkur. Í staðinn fáum við svigrúm til að leggja enn meiri vinnu í rannsóknir og vöruþróun,“ segir Garðar Ingvarsson Juto, tæknistjóri Streymi Labs.