Opnunarviðburður Glóðar — 1. september kl. 12–17 í GróskuSjá dagskrá
    Til baka

    15. maí 2026

    Arcanabio fær lánaðar Spark tölvur

    Arcanabio fær lánaðar Spark tölvur

    Arcanabio er fyrsti viðskiptavinur Glóðar sem fær lánaðar Spark tölvur til nokkurra vikna.

    Tækni Arcana byggir í grunninn á nýrri ljósgreiningartækni sem notast við gervigreind til að greina og mæla mismunandi gagnapunkta út úr próteinum með mikilli nákvæmni. Aðferðin þarfnast ekki dýrra hvarfefna (e.reagents), tekur örfáar mínútur í framkvæmd og er mun hagkvæmari en núverandi lausnir. Þá býður lausnin einnig upp á að skoða mikinn fjölda lífmerkja í hverri keyrslu fyrir sig.

    „Markmið okkar hjá Arcana er í grunninn að endurhugsa heilsufarsgreiningar til lengri tíma. Í því felst að þróa lausnir sem styðja við heilsuforvarnir og stuðla að eflingu á heilsuvitund meðal fólks með hjálp nýrra greiningalausna sem henta dags daglega, t.d. til að fylgjast með streitu og styðja við andlega líðan” segir Kristján Már Gunnarsson, framkvæmdastjóri Arcana.

    Teymið á bak við Glóð er virkilega spennt fyrir þessu samstarfi og við hlökkum til að sjá hvaða framförum fyrirtækið nær með hjálp meira reikniafls. Við fylgjumst spennt með!