Opnunarviðburður Glóðar — 1. september kl. 12–17 í GróskuSjá dagskrá

    Fyrir umsækjendur

    Umsóknarferlið

    1

    Hafðu samband

    Hafðu samband og segðu okkur frá verkefninu þínu.

    2

    15 mínútna kynningarfundur

    Stuttur fundur til að kynnast þínum þörfum og markmiðum.

    3

    Pörun við sérfræðing og rétt þjónustustig

    Við tengjum þig við réttan sérfræðing og viðeigandi þjónustustig Glóðar.

    4

    Aðgangur og stuðningur

    Þú færð aðgang að reikniafli og stuðning til að keyra prófunarverkefni (e. proof of concept).

    5

    Eftirfylgni og næstu skref

    Við fylgjum eftir framvindu og hjálpum þér að skilgreina næstu skref.

    Þjónustustig Glóðar

    Glóð býður upp á þrjú þjónustustig, byggt á þínum þörfum á reikniafli. Smelltu á hvert stig til að sjá nánari lýsingu.

    1
    2
    3

    Í samstarfi við

    LUMI AI FactoryEuroHPC JU

    Viðbætur og aðrir valkostir

    Viðbót

    GB10 vél

    Vantar þig gervigreindartölvu á skrifborðið fyrir hraða frumgerðasmíði?

    Í tilviki þeirra sem þarfnast sinnar eigin ofurtölvu geta útvaldir viðskiptavinir Glóðar fengið að láni Nvidia GB10 borðtölvu (það er þá DGX spark tölva eða jafngildi hennar) til að þjálfa og fínþjálfa á staðnum. Skjáminnið (VRAM) á slíkum tölvum er á milli 128 og 256 gígabæta.

    Valkostur

    IREI

    Gerir fyrirtækið þitt kröfur um að gögn fari ekki úr landi?

    Sum fyrirtæki þurfa að halda gögnunum sínum innanlands og valdir viðskiptavinir geta fengið aðgang að ofurtölvu Háskóla Íslands, IREI. Gögnin fara þá aldrei úr landi.

    Í boði

    UI Science ParkHáskóli ÍslandsÍREI