Til baka

    11. febrúar 2026

    Gervigreind í þágu jafnréttis – Glóð tók þátt í Jafnréttisdögum háskólanna 2026

    Gervigreind í þágu jafnréttis – Glóð tók þátt í Jafnréttisdögum háskólanna 2026

    Í febrúar síðastliðnum stóð Glóð fyrir málstofunni „Gervigreind í þágu jafnréttis?“ í tengslum við Jafnréttisdaga háskólanna 2026. Þar komu saman fulltrúar háskólasamfélagsins, tæknigeirans og félagasamtaka sem starfa að jafnréttismálum til að ræða hvernig nýta megi gervigreind til að stuðla að auknu jafnrétti kynjanna.

    Í stað þess að beina sjónum eingöngu að áhættu og samfélagslegum áskorunum sem fylgja gervigreind var áhersla lögð á tækifærin sem tæknin býður upp á. Þátttakendur ræddu meðal annars hvernig hægt væri að nýta gervigreind til að draga úr viðvarandi ójöfnuði og hvaða forsendur þurfi að vera til staðar svo tæknin nýtist samfélaginu á ábyrgan hátt.

    Anna Liebel, verkefnastjóri Glóðar við Háskólann í Reykjavík, hafði umsjón með málstofunni. María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur í lögfræði við lagadeild Háskólans í Reykjavík, og Anna Sigríður Íslind, prófessor við tölvunarfræðideild skólans, fluttu erindi. Að þeim loknum tóku þær þátt í pallborðsumræðum ásamt Atla Jasonarsyni, verkefnastjóra í máltækni hjá Árnastofnun, undir stjórn Atla Þórs Jóhannssonar, eins stofnenda Samtaka um mannvæna tækni.

    Málstofan er hluti af víðtækara starfi Glóðar við að stuðla að ábyrgri og traustverðugri þróun gervigreindar á Íslandi. Glóð vinnur meðal annars að leiðbeiningum og verkfærum sem eiga að auðvelda fyrirtækjum og stofnunum að meta gervigreindarlausnir sínar með hliðsjón af kröfum gervigreindarreglugerðar Evrópusambandsins (EU AI Act). Með málstofunni var jafnframt skapaður vettvangur fyrir samtal og þekkingarmiðlun um hvernig gervigreind getur nýst í þágu samfélagsins.