6. maí 2026
Gervigreind og lögfræði – Glóð tók þátt í ráðstefnu Kveikju

Fulltrúar Glóðar tóku þátt í ráðstefnu um gervigreind og lögfræði sem Kveikja stóð fyrir. Á ráðstefnunni komu saman sérfræðingar úr ólíkum greinum til að ræða hvernig hröð þróun gervigreindar hefur áhrif á lög, siðferði og samfélagið í heild. Meðal þátttakenda frá Glóð voru Stefán Ólafsson, Gunnar Þór og María Rún Bjarnadóttir.
Á ráðstefnunni var meðal annars fjallað um innleiðingu gervigreindar á Íslandi, samfélagslegar og siðferðilegar áskoranir og mikilvægi mannlegrar dómgreindar við notkun tækninnar. Sérstök áhersla var lögð á djúpfalsanir, en Elín Carstensdóttir og María Rún Bjarnadóttir ræddu hvernig tæknin virkar og hvaða áskoranir hún skapar fyrir persónuvernd, traust og upplýsingamiðlun. Í kjölfar ráðstefnunnar hefur menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið komið á fót starfshópi um djúpfalsanir á Íslandi og hefur María Rún verið skipuð formaður hans.
Stefán Ólafsson fjallaði um hvernig gervigreindarlíkön læra af þjálfunargögnum og hvernig bjögun í gögnunum getur haft áhrif á niðurstöður þeirra. Hann tók meðal annars dæmi um kynjahalla í íslenska mállíkaninu IceBERT og ræddi mögulegar úrbætur, svo sem betri þjálfunargögn, íslensk próf og áframhaldandi þróun íslenskra gervigreindarlíkana.
Ráðstefnunni lauk með pallborðsumræðum þar sem meðal annars var rætt um mikilvægi samstarfs lögfræðinga, tölvunarfræðinga og annarra sérfræðinga. Umræðurnar undirstrikuðu að ábyrg þróun og notkun gervigreindar krefst þekkingar úr mörgum ólíkum greinum og að tæknilegar framfarir þurfi að haldast í hendur við lagaleg og siðferðileg sjónarmið.