Gervigreind · Hagtölur · Gagnaþon

    Gervigreindargagnaþon Hagstofu Íslands 2026

    Smíðum snjalla leitarvél fyrir íslenskar hagtölur

    Dagsetning

    30. október – 1. nóvember 2026

    Tími

    Kl. 8:00–22:00

    Staðsetning

    Gróska, Reykjavík

    Gagnaþon hefst 31. október kl. 08:00

    Smíðum snjalla leitarvél fyrir íslenskar hagtölur

    Hvernig væri ef hægt væri að spyrja um íslenskar hagtölur á venjulegu máli og fá skýr og áreiðanleg svör á augabragði?

    Í gervigreindargagnaþoni Hagstofu Íslands fá þátttakendur tækifæri til að þróa frumgerð að snjallri leitarvél sem gerir notendum kleift að nálgast opinberar hagtölur með einföldum spurningum.

    Markmiðið er að nýta gervigreind til að auðvelda aðgang að gögnum Hagstofunnar. Þátttakendur munu vinna með stór mállíkön (LLM), RAG-tækni og gagnatengingar til að þróa lausn sem finnur viðeigandi hagtölur og birtir niðurstöður á skýran og aðgengilegan hátt.

    Þátttakendur fá aðgang að opnum gögnum Hagstofu Íslands og geta nýtt öfluga reiknigetu, meðal annars NVIDIA DGX Spark og LUMI-ofurtölvuna, með stuðningi samstarfsverkefnanna Kveikju og Glóðar.

    Gagnaþonið er ætlað háskólanemum, fagfólki og fyrirtækjum sem hafa áhuga á gervigreind, forritun og hagnýtingu gagna.

    Skráning er opin til 30. október 2026

    Dagskrá

    Miðvikudagur 28. október · 16:00

    Fjarkynningarfundur

    Kynning á gagnaþoninu, verkefninu og fyrirkomulagi þess. Fundartengill verður sendur skráðum þátttakendum.

    Föstudagur 30. október · 15:00

    Setning gagnaþonsins

    Gagnaþonið verður formlega sett og þátttakendur fá aðgang að gögnum og öðru efni sem þarf til verkefnavinnunnar.

    Laugardagur 31. október · 08:00

    Gagnaþonið hefst í Grósku

    Þátttakendur hefja vinnu við að þróa gervigreindarlausn sem getur svarað spurningum um íslenskar hagtölur.

    Húsnæðið verður opið þátttakendum frá kl. 08:00 til 22:00. Nánari dagskrá verður kynnt við setningu gagnaþonsins.

    Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.

    Um Glóð

    Glóð styður íslenska nýsköpun í gervigreind með aðgangi að þekkingu, gögnum og reikniafli - gjaldfrjálst og fyrir öll - hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin eða ert lengra kominn. Glóð er styrkt að hluta af Evrópusambandinu.