Þjónustupakkar

    Þörfin fyrir aukið reikniafl getur verið misjöfn og fer eftir því hvað verið er að vinna að. Þess vegna býður Glóð upp á 9 þjónustupakka. Notaðu síurnar hér undir til að finna þann þjónustupakka sem hentar best. Veldu þann sem passar best við þína stöðu og við aðstoðum við næstu skref.

    Flokkur
    Vinnuálag
    Reynsla

    Fyrstu skrefin í reikniaflsnotkun

    Fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í gervigreind og ofurtölvum.

    Sproti eða fyrirtæki
    • Reynslusögur og aðferðir frá öðrum fyrirtækjum
    • Aðgangur að íslenskum og evrópskum ofurtölvum
    • Þjálfun og kynning á gervigreind og ofurtölvum
    • Sérfræðiaðstoð við val og uppsetningu á gervigreindarlíkönum
    • Samanburður við skýjaþjónustur (AWS, Azure, Google Cloud)
    • Möguleikar í reikni- og geymsluinnviðum fyrir viðkvæm gögn
    Hafðu samband

    Gervigreind og tungumál

    Fyrir þau sem vilja nýta stór mállíkön (LLM) og máltækni, t.d. spjallmenni, þýðingar eða textagreiningu.

    Sproti eða fyrirtækiOpinber stofnun
    • Greining á þínu máltækniverkefni með sérfræðingum
    • Reynslusögur frá fyrirtækjum sem nota mállíkön
    • Íslensk gagnasöfn og verkfæri á ofurtölvum
    • Yfirlit og mat á gæðum mállíkana fyrir íslensku
    • Stuðningur við þjálfun og fínstillingu á mállíkönum
    • Prompt-hönnun til að auka virði í LLM-lausnum
    Hafðu samband

    Hraðari þjálfun djúpra gervigreindarlíkana

    Fyrir teymi sem þegar nota gervigreind og vilja þjálfa stærri líkön hraðar með ofurtölvum.

    Sproti eða fyrirtæki
    • Greining á gagnamagni fyrir dreifða þjálfun
    • Ráðgjöf um dreifða djúpa þjálfun á ofurtölvum
    • Samanburður á aðferðum: módel-, gögnum- og pípulínu-skiptingu
    • Sérfræðistuðningur um hugbúnaðarpakka fyrir HPC og gervigreind
    • Samanburður á PyTorch-DDP, TensorFlow/Horovod og DeepSpeed
    • Ráðgjöf um gagnahleðslur (t.d. DALI) og áhrif þeirra á skölun
    Hafðu samband

    Tímaraðir og spár með ofurtölvum

    Fyrir orkufyrirtæki, flutninga, fjártækni og umhverfisvöktun eða öll sem þurfa að spá fyrir um framvindu úr gögnum yfir tíma.

    Sproti eða fyrirtækiOpinber stofnun
    • Skalanleg forvinnsla á tímaraðagögnum
    • Ráðgjöf um val á spáaðferðum (LSTM, GRU, Transformer o.fl.)
    • Aðgangur að íslenskum veður-, jarð- og orkugögnum
    • Þjálfun spálíkana á ofurtölvum með háu úrtaki
    • Stuðningur við að keyra spár í rauntíma
    • Frávikagreining og fyrirbyggjandi viðhald með gervigreind
    • Sambland tölfræðilegra aðferða og djúpnáms í spáverkflæði
    Hafðu samband

    Örugg gervigreind fyrir viðkvæm gögn

    Fyrir heilbrigðiskerfi, opinberar stofnanir og fyrirtæki sem vinna með persónugreinanleg eða lögvernduð gögn.

    Opinber stofnunSproti eða fyrirtæki
    • Innleiðing á persónuverndar­tækni (t.d. differential privacy)
    • Búa til gervi-gagnasöfn til þjálfunar þegar raungögn eru viðkvæm
    • Nýjar aðferðir við nafnleysingu og dulkóðun gagna fyrir vinnslu
    • Reikni- og geymsluinnviðir fyrir viðkvæm gögn
    • Ráðgjöf um regluvörslu (AI Act og GDPR)
    • Stuðningur við trúnaðarvinnslu (confidential computing)
    • Stuðningur við þjálfun líkana í einangruðu umhverfi
    Hafðu samband

    Meðhöndlun gagna

    Viðskiptavinur sem vinnur með flókin gögn eða gögn í miklu magni

    Sproti eða fyrirtækiOpinber stofnun
    • Forvinnsla gagna: Leiðsögn fyrir undirbúning gagna þar sem eru notaðar rótgrónar aðferðir á borð við CRISP-DM.
    • Verkferli gagna: Stuðningur fyrir notendur sem þurfa að koma gögnunum sínum enda á milli með notkun Apache Airflow og auðlindum stórvirkrar tölvuvinnslu (e. HPC).
    • Aðgangur að gögnum: Aðstoð við notendur til að finna og fá aðgang að gögnum frá opnum evrópskum gagnasöfnum og -vefgáttum.
    • Viðmið um sýnileika gagna: Stuðningur við notendur í formi lausna um hvernig á að meðhöndla lýsigögn og forgangsröðun keyrslna (FAIRsharing)
    • Meðhöndlun gagna í HPC-umhverfi: Ráðgjöf um bestu skráarsniðin og notkun skráarkerfis í HPC-kerfum svo samhliða vinnsla (e. parallel processing) verði sem skilvirkust.
    Hafðu samband

    Kynning á gervigreind með erindrekum (e. Agentic AI) – Að skilja tilfærsluna frá tólum til erindreka

    Opinberar stofnanir sem eru að skoða hvar gervigreind með erindrekum passar inn sem og meðalstór fyrirtæki og sprotafyrirtæki sem langar að skilja tæknina áður en hún er innleidd.

    Opinber stofnunSproti eða fyrirtæki
    • Grunnurinn að gervigreind með erindrekum og þjálfun með EuroHPC kerfum.
    • Hvernig virka erindrekar og lærdómsnálganir á borð við styrkingarnám (e. Reinforcement Learning)
    • Kortlagning tækifæra og uppgötvun notkunartilvika
    • Leidd sýnikennsla og tilraunir í sandkassa (e. Sandboxed Trials)
    • Að byggja upp gervigreindarlæsi í stofnun
    Hafðu samband

    Gervigreind með erindrekum: Örugg upptaka, innleiðing og stjórnarhættir

    Opinberar stofnanir (t.d. sveitarfélög, heilbrigðisstofnanir og félagsþjónusta) og lítil og meðalstór fyrirtæki (t.d. sprotafyrirtæki og öll fyrirtæki sem eru að innleiða erindreka í verkferli áður en regluverk er fullmótað).

    Opinber stofnunSproti eða fyrirtæki
    • Arkitektúr erindreka sem eru þjálfaðir á EuroPHC-kerfum og stuðningur við samhæfingu (e. Orchestration Support)
    • Innbyggðir varnarveggir (e. guardrails) og öryggismörk
    • Mannlegt eftirlit og hönnun á því hvernig málum er vísað áfram þangað af gervigreind
    • Mat á erindrekum, prófanir til að láta líkanið haga sér illa (e. red-teaming) og vöktun á hegðun
    • Ráðgjöf um meðalhóf og ábyrgðarskyldu samkvæmt evrópsku reglugerðinni um gervigreind (EU AI Act)
    • Hlutverk MCP-þjóna, LUMI og EuroHPC kerfa í gámavædda innleiðingu (e. containerised deployment)
    Hafðu samband

    Kerfisbundin bestun stillistika í gervigreindarlíkani (e. hyperparameter optimisation, HPO)

    Allir viðskiptavinir

    Sproti eða fyrirtækiOpinber stofnun
    • Skilningur á gæðum gervigreindarlíkans á móti stillistikum
    • Lýsing á flækjustigi í leitarrúmi stillistika
    • Nálganir til að fá hærri nákvæmni og færri villur í gervigreindarlíkönum
    • Skilningur á mismuni reikniaflsþarfar fyrir prófanir og fulla þjálfun
    • Kynning og dæmi um verkfæri eins og Ray Tune, Optuna o.s.frv.
    Hafðu samband

    Á ekkert af þessu við?

    Hafðu samband og við aðstoðum þig við að greina þína reikniþörf.

    Hafðu samband